Litli salur

Í safnaðarheimili Langholtssóknar eru fallegir veislusalir. Salina má leigja hvorn um sig eða þá báða og tengja saman.

Minni salurinn tekur um 60 manns í sæti en sá stærri 120 manns. Ennfremur hentar vel að hafa standandi veislu eða erfidrykkju í salarkynnum safnaðarheimilisins.

Góð aðstaða er til funda og til ráðstefnuhalds og skjávarpi og tjald á staðnum.

Bókanir og upplýsingar
Bókanir og frekari upplýsingar um veislu og fundarsali safnaðarheimilis Langholtskirkju eru veittar í gegnum netfangið langholtskirkja@langholtskirkja.is Einnig er hægt að fá upplýsingar á skirfstofutíma í síma kirkjunnar 789 1300. Yfirumsjón hefur kirkjuvörður.

Erfidrykkjur 

Varðandi erfidrykkjur virka daga þá er fyrirkomulagið er með þeim hætti að Veislan veislueldhús á Seltjarnarnesi selur veitingar í erfidrykkurnar en aðstandendur fá einn reikning frá Langholtskirkju sem innifelur eftirfarandi : Þjónustu, veitingar, kaffi, gos, salarleigu, borðbúnað, rekstrarvörur.

 Ath. Ekki er heimilt að koma með eigin veitingar í erfidrykkjur þar sem að Langholtskirkja er ekki með starfsfólk við þjónustustörf  í safnaðarheimilinu virka daga sem og vegna hollustusjónarmiða.  Öll þjónusta og veitingar eru á vegum Veislunnar veislueldhúss. 

Gott að vita
Mjög hófleg meðferð léttra vína og bjórs er möguleg í veislum í safnaðarheimilinu. Veislum þarf að vera lokið um miðnætti. Reykingar eru bannaðar í húsinu.

Safnaðarheimili Langholtskirkju

langholtskirkja@langholtskirkja.is.
Sólheimum 11-13
104 Reykjavík
Sími : 789 1300

Hér getið þið komið inn í salinn í gengum Google Street Veiw