Minningarstund á allra heilagra messu, 5. nóv kl. 17

Faure Requiem

Tendruð verða bænaljós í minningu þeirra sem látin eru sunnudaginn 5. nóvember kl. 17:00 í Langholtskirkju. Sálumessa Fauré verður flutt af Kór Langholtskirkju. Magnús Ragnarsson organisti leikur á orgel, Sunna Karen Einarsdóttir stjórnar, einsöngvarar verða þau Íris Björk Gunnarsdóttir og Ólafur Freyr Birkisson úr röðum kórsins. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar.

Aðgangur er ókeypis.