Messa og barnastarf sunnudaginn 6. janúar kl. 11

Verið velkomin til kirkju fyrsta sunnudag á nýju ári, 6. janúar kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar ásamt Magnúsi Ragnarsyni organista, kirkjuverði og messuþjónum. Félagar úr Fílharmóníunni leiða safnaðarsöng. Kaffi og meðlæti í safnaðarheimili eftir stundina.

Sunnudagaskólinn verður á sínum stað eftir sameiginlegt upphaf í kirkju. Sara Grímsdóttir og Hafdís Davíðsdóttir leiða samveruna sem hentar börnum á öllum aldri. Hittumst heil á sunnudag.