Messa og barnastarf á Hvítasunnudag 20. maí

Messa og barnastarf kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur og sr. Jóhanna Gísladóttir þjóna. Organisti er Magnús Ragnarsson. Félagar úr Kór Langholtskirkju leiða safnaðarsöng. Fimmtán börn verða fermd í athöfninni. Kirkjuvörður og messuþjónar aðstoða við helgihaldið.

Sögustund fer fram á sama tíma í litla sal. Sara Grímsdóttir tekur vel á móti börnum á öllum aldri.