Laufabrauðsbakstur Kvenfélags Langholtssóknar laugardaginn 19. nóvember

Kvenfélag Langholtssóknar stendur fyrir laufabrauðsbakstri laugardaginn næstkomandi 19. nóvember milli kl. 13:00 og 15:00. Þetta er tilvalið tækifæri til hefja jólaundirbúninginn með allri fjölskyldunni og eiga saman notalega stund í safnaðarheimilinu. Börn og barnabörn sérstaklega velkomin.

Laufabrauð er selt og steikt á staðnum og verðið er það sama og í síðustu ár, 100 kr. kakan. Taka þarf meðferðis bretti, hnífa og ílát undir laufabrauðið. Boðið verður upp á kaffi, djús og piparkökur. Verið öll velkomin, kvenfélagskonur og fjölskyldur þeirra, hverfisbúar og gestir og gangandi.