Langholtssókn auglýsir laust til umsóknar starf organista

Langholtssókn í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra auglýsir laust til umsóknar starf organista.

Um er að ræða 100% starf.

Menntunarkröfur eru Kantorspróf.

Krafist er reynslu af kirkjulegu starfi og hæfni í mannlegum samskiptum.

Launagreiðslur og önnur kjör miðast viðkjarasamning launanefndar þjóðkirkjunnar og FÍO/Organistadeildar FÍH.

Umsóknarfrestur er til 7. júní 2017.

Umsóknir berist rafrænt í netföngin :  bjorgdr@gmail.com og johanna@wpvefhysing.is

Upplýsingar um starfið veita Björg Dan Róbertsdóttir formaður sóknarnefndar í síma: 853-1414 og Jóhanna Gísladóttir settur sóknarprestur í síma: 696-1112.

 

Starfslýsing :

Starf organista Langholtssóknar er 100% starf

Vinnuveitandi er sóknarnefnd Langholtssóknar.

Verkefni organista eru eftirfarandi :

1.     Orgelleikur í helgihaldi og safnaðarstarfi. 

2.   Listræn stjórn tónlistarstarfs safnaðarins.

3.    Kórstjórn og tónleikahald.

4.    Önnur verkefni í samráði við sóknarnefnd og sóknarprest.

Orgelleikur og kórstjórn, eftir því sem við á, í athöfnum (skírn, hjónavígsla, kistulagning, útför). Greitt er fyrir orgelleik og kórstjórn í athöfnum sérstaklega af beiðendum þjónustunnar í samræmi við gildandi samninga.

Hvað varðar laun og önnur kjör gildir kjarasamningur FÍH Organistadeildar og Launanefndar Þjóðkirkjunnar.

Að öðru leyti er vísað til starfsreglna um organista823/1999 og starfsreglur um sóknarnefndir 1111/2011.