Konudagsmessa og sunnudagaskóli sunnudaginn 19. febrúar

Verið velkomin til Konudagsmessu n.k. sunnudag kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladóttir þjónar og organisti er Árni Heiðar Karlsson. Lítill drengur verður borinn til skírnar í athöfninni. Gradualekór Langholtskirkju leiðir safnaðarsöng og tekur lagið fyrir kirkjugesti. Halldóra Eyjólfsdóttir sjúkraþjálfari og kvenfélagskona flytur hugvekju.

Sunnudagaskólinn verður á sínum stað og Sara Grímsdóttir og Hafdís Davíðsdóttir taka vel á móti börnunum.

Kirkjugestum verður boðið upp á heitar vöfflur með kaffinu í tilefni dagsins í safnaðarheimili eftir stundina. Við hvetjum þig til að njóta samfélagsins í kirkjunni með okkur.