Jólatónleikar Kórskóla Langholtskirkju 10. desember kl. 18 – ath. ókeypis aðgangur

Á jólaföstunni gefst tækifæri til að fylgjast með blómlegu uppbyggingarstarfi kirkjunnar alveg frá Krúttakór og upp í Gradualekór Langholtskirkju. Hinn sígildi jólahelgileikur Hauks Ágústssonar er fluttur af kórskólabörnum.

Hátt í 150 börn á aldrinum 4. – 18 ára taka þátt í tónleikunum og eitt er víst að gleðin verður við völd. Þeir kórar sem taka þátt í tónleikunum eru :

Krúttakór Langholtskirkju – stjórnendur: Björg Þórsdóttir og Ragnheiður Sara Grímsdóttir

Kórskóli Langholtskirkjustjórnandi: Bryndís Baldvinsdóttir

Graduale Futuristjórnandi: Rósa Jóhannesdóttir

Graduale stjórnandi: Harpa Harðardóttir

Ágústa Jónsdóttir spilar undir fyrir alla kórana.

Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir. Sætaframboð er takmarkað og því gott að mæta tímanlega !