Fjölskyldumessa sunnudaginn 18. febrúar

Verið velkomin í fjölskyldumessu næstkomandi sunnudag kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladóttir þjónar og undirleik annast Bryndís Baldvinsdóttir. Miðjuhópur Krúttakórs Langholtskirkju syngur fyrir kirkjugesti undir stjórn Auðar Guðjohnsen og Söru Grímsdóttir. Aðalsteinn Guðmundsson kirkjuvörður og messuþjónar aðstoða við helgihaldið.

Kaffi, djús og ávextir eftir stundina. Við hlökkum til að sjá sem flest!