Fjölskyldumessa sunnudaginn 15. janúar kl. 11

Verið öll velkomin í Langholtskirkju sunnudaginn 15. janúar kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladóttir og Snævar Jón Andrjesson æskulýðsfulltrúi leiða létta og bráðskemmtilega fjölskyldumessu sem hentar öllum aldurhópum. Bryndís Baldvinsdóttir spilar undir af sinni kunnu snilld.

Skólahópur Krúttakórs Langholtskirkju kemur fram í fyrsta sinn á nýju ári undir stjórn Thelmu Hrannar Sigurdórsdóttur og Söru Grímsdóttur. Messuþjónar aðstoða við helgihaldið.

Kaffi, djús, ávextir og góð samvera í safnaðarheimili eftir stundina.