Aðventuhátíð kl. 17 fyrsta sunnudag í aðventu.

Fyrsta sunnudag í aðventu verður haldin glæsileg aðventuhátíð í Langholtskirkju kl. 17.
Allir kórar kirkjunnar flytja aðventu- og jólatónlist. Auk þess spilar Lúðrasveitin Svanur. Lesin verður jólasaga, elstu börnin í Krúttakórnum flytja Lúsíuleik og kirkjugestir syngja inn aðventuna.
Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin.